sv
Books
Ýmsir Höfundar

Svikavefur

Meðal verkefna efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjórans er móttaka tilkynninga sem bankastofnunum og fleiri aðilum ber að senda lögreglu, hafi þeir grun um að fjármunir, sem einstaklingar eða lögaðilar höndla með, hafi verið fengnir með ólögmætum hætti, eins og nánar er lýst í lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti. Umtalsverður fjöldi slíkra tilkynninga berst á ári hverju, sem margar hverjar koma að miklu gagni við uppljóstrun ýmissa brota.

Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást— æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.
31 printed pages
Original publication
2020
Publication year
2020
Publisher
Saga Egmont
Have you already read it? How did you like it?
👍👎
fb2epub
Drag & drop your files (not more than 5 at once)