Greining fingrafara hefur lengi verið mikilvæg við rannsóknir á sakamálum. Hér á eftir er samantekt um sögu fingrafararannsókna frá upphafi og sagt frá þeim íslensku rannsóknarlögreglumönnum sem hófu skráningu og úrvinnslu fingrafara við rannsóknir sakamála hérlendis. Þá er líka lýst í stuttu máli þróun tæknirann— sókna hjá lögreglunni hér á landi.
Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást— æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.