bookmate game
is
Audio
Marvel

Köngulóarmaðurinn: Ofurhetjuárás!

Listen in app
BERST LÓI VIÐ VINI SÍNA?


Peter Parker stendur í ströngu við að sinna skólanum, hitta vinina og lifa lífinu sem ofurhetjan Köngulóarmaðurinn. Vanalega tekst honum að halda jafnvægi, en þegar liðsstjóri skólaruðningsliðsins, Flash Thompson, byrjar að stríða honum verður Peter Parker að læra hvernig skal halda ofurkröftum sínum í skefjum. Til að toppa allt byrja Ofurhugi, Nóva, Fyrirbærið og Járnmaðurinn að haga sér undarlega og valda usla um alla New York-borg! Það er undir Köngulóarmanninum komið að bjarga deginum. Þegar Flash kemur sér í klandur hjá illu ofurhetjunum er spurning hvort Peter geti bjargað helsta óvini sínum og hindrað ... ofurhetjuárásina!



© Disney/Marvel. All rights reserved.

Í Hefnendunum berjast stærstu (og minnstu) ofurhetjurnar saman við að bjarga heiminum frá hættulegum ofurskúrkum og illum öflum. Hittu Járnmanninn, Kaftein Ameríku, Þór, Svörtu ekkjuna, Svarta pardusinn og alla hina og komdu með í skemmtileg ævintýr með heimsins mestu hetjum!

Fylgstu með ævintýraheimi Marvel! Hlustaðu á spennandi frásagnir af Hefnendunum: Járnmanninum, Köngulóarmanninum, Hulk, Kaftein Ameríku, Svörtu ekkjunni, Þór, Haukfráni, Marvel liðsforingja, Fálka og öllum hinum hetjunum og illmennunum úr ótrúlegum fjársjóðskistum Marvels. Skelltu þér í skikkjuna og finndu þína innri ofurhetju - nú förum við í æsileg ævintýr!
0:55:21
Publisher
Saga Egmont
Publication year
2022
Have you already read it? How did you like it?
👍👎
fb2epub
Drag & drop your files (not more than 5 at once)