no
Books
Óþekktur

Basil fursti: Ævintýri í næturklúbb

Basil fursti er staddur í Lundúnum að leita uppi ný ævintýri. Er hann þræðir næturklúbba borgarinnar hefur hann ekki minnsta grun um að þar leitar háskakvendi og skæður óvinur hans hefnda elskhuga síns. Í sögu þessari fá lesendur að kynnast óvæntri hlið á furstanum þar sem ástir, svik og undirferli fléttast saman í spennandi háskaleik. Bókin er sjálfstætt framhald af sögunum um Basil fursta og hans fjölmörgu ævintýri.
Persónurnar og notkun á tungumáli í verkinu endurspegla ekki skoðanir útgefandans. Verkið er gefið út sem sögulegt skjal sem inniheldur lýsingar á tíðaranda og skynjun manna sem tíðkaðist á tímum skrifanna.

Ævintýrin um Basil fursta komu fyrst út á Íslandi árið 1939. Bækurnar vöktu ánægju hér á landi enda auðlesin og skemmtileg ævintýri. Basil fursti er víðkunnur sem konungur leynilögreglumanna. Honum er falið að leysa hin erfiðustu glæpamál víðsvegar um heiminn, enda þykir hann manna færastur til þeirra verka. Höfundur bókanna er óþekktur.
58 printed pages
Original publication
2022
Publication year
2022
Publisher
Saga Egmont
Translator
Óþekktur
Have you already read it? How did you like it?
👍👎
fb2epub
Drag & drop your files (not more than 5 at once)