no
Books
- Óþekktur

Vatnsdæla saga

Vatnsdæla saga hefst upphaflega í Noregi en færist svo heim til Íslands. Hún segir frá Ingimundi gamla og landnámi hans í Vatnsdal þar sem hann settist að og gerðist ættarhöfðingi. Verkið hefst eins og fleiri Íslendingasögur í heiðni en endar í kristni.
Vatnsdæla saga er ættarsaga og fjallar um sögu fjögurra ættliða. Hún gerist í kring um árið 900 og telst því til yngri verka Íslendingasagnanna. Talið er að sagan hafi verið rituð á 13. öld.
Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.
102 printed pages
Original publication
2019
Publication year
2019
Publisher
Saga Egmont
Have you already read it? How did you like it?
👍👎
fb2epub
Drag & drop your files (not more than 5 at once)