no
Books
H.C. Andersen

Svanirnir

Í fjarlægu landi búa tólf systkin, ellefu bræður og ein systir. Börnin eru konungborin og lifa lífi sínu eftir því, þar til þau verða fyrir því óláni að faðir þeirra kvongast á ný. Nýja drottningin er reglulegt galdraflagð. Dótturina sendir hún í burtu úr höllinni en á synina leggur hún þau álög að þeir breytist í svani á björtum degi og megi einungis öðlast sitt mennska form er sól hnígur til viðar.
Þegar systirin, Elísa, er orðin fimmtán ára hittir hún bræður sína á ný og verður vísari um örlög þeirra. Hún sver þess dýran eið að rifta álögunum sama hvað það kosti. Henni vitjast lausn í draumi, en sú er ekki þrautalaus og fleiri steinar eiga eftir að verða í götu hennar.
Þýðandi er Steingrímur Thorsteinsson.

H.C. Andersen (1805–1875) er eitt þekktasta skáld Danmerkur. Eftir hann liggja á fjórða þúsund ævintýra sem þýdd hafa verið á meira en 125 tungumál. „Svanirnir" er fallegt ævintýri um systkinakærleik, sem um leið blandar saman mörgum þekktum ævintýraminnum. Sagan inniheldur aukinheldur ýmsar vísanir, sem útskýrðar eru á vandvirknislegan máta í neðanmálsgreinum. rn
25 printed pages
Original publication
2020
Publication year
2020
Publisher
Saga Egmont
Have you already read it? How did you like it?
👍👎
fb2epub
Drag & drop your files (not more than 5 at once)