is
Audio
Erling Poulsen

Ást og hatur (Rauðu ástarsögurnar 9)

Listen in app
Eftir föðurmissi stendur Maríanna Biorck uppi allslaus. Þegar hún fær boð um að gerast stofustúlka hjá lafði Wellington í Kent á Englandi grípur hún tækifærið án umhugsunar. Þangað ferðast hún ásamt dýralækninum Allan Bennow sem ætlar sér einnig að starfa fyrir fjölskylduna. Við komuna á setrið vaknar fljótt uggur hjá Maríönnu vegna orðróms um reimleika og óviðeigandi tilhneigingar einkasonar lafði Wellington. Þrátt fyrir aðvaranir frá fólki kýs Maríanna að dvelja áfram á setrinu, drifin af forvitni um dularfullan og óáþreifanlegan persónuleika herra Wellingtons.



Rauðu ástarsögurnar samanstanda af rómantískum skáldsögum úr smiðju Erling Poulsen. Bækurnar innihalda jafnan ævintýralegar sögur þar sem staðarhættir margvíslegra borga um allan heim spila stórt hlutverk. Rómantíkin fléttast gjarnan við ferðalög en einnig dramatískar glæpasenur og leyndarmál sem býr til áhugverðan kokteil fyrir lesendur sem vilja gleyma sér í amstri hins daglega lífs.

Erling Poulsen (1919-1995) var danskur blaðamaður og rithöfundur. Hann skrifaði fjölda skáldsagna í flokki afþreyingarbókmennta, sem nutu mikilla vinsælda á sínum tíma. Ásamt því að skrifa undir eigin nafni notaðist Poulsen einnig við dulnefnin Bodil Forsberg og Else-Marie Nohr. Þekktasta skáldaga hans er „Drømmen om det hvide slot", sem var gerð að kvikmynd árið 1962 undir leikstjórn Anker Sørensen.
7:07:02
Publisher
Saga Egmont
Translator
Skúli Jensson
Publication year
2023
Have you already read it? How did you like it?
👍👎
fb2epub
Drag & drop your files (not more than 5 at once)