is
Audio
Óþekktur

Basil fursti: Glæpamannadrottningin

Listen in app
Þegar Basil fursti fær hverja heimsóknina á fætur annarri sem bera merki um að glæpamannadrottningin sé komin á mannaveiðar er hann snöggur að koma sér í stellingar. Basil og Sam Foxtrot þurfa að hafa hraðar hendur því grunur leikur á að hennar næsta fórnarlamb sé hinn háttvirti hertogi af Girdlestone. Drottning þessi er þó ekkert lamb að leika sér við og þurfa þeir félagar að taka á öllu sínu til þess að leysa ráðgátuna.

Persónurnar og notkun á tungumáli í verkinu endurspegla ekki skoðanir útgefandans. Verkið er gefið út sem sögulegt skjal sem inniheldur lýsingar á tíðaranda og skynjun manna sem tíðkaðist á tímum skrifanna.

Ævintýrin um Basil fursta komu fyrst út á Íslandi árið 1939. Bækurnar vöktu ánægju hér á landi enda auðlesin og skemmtileg ævintýri. Basil fursti er víðkunnur sem konungur leynilögreglumanna. Honum er falið að leysa hin erfiðustu glæpamál víðsvegar um heiminn, enda þykir hann manna færastur til þeirra verka. Höfundur bókanna er óþekktur.
1:57:08
Publisher
Saga Egmont
Translator
Óþekktur
Publication year
2022
Have you already read it? How did you like it?
👍👎
fb2epub
Drag & drop your files (not more than 5 at once)