no
Books
Marilyn French

Vera í víti

Höfundur Kvennaklósettsins sendir hér frá sér ógleymanlegar endurminningar um lygilegan sigur sinn á krabbameini í vélinda. Raunar sigraðist Marilyn French þrisvar á dauðanum. Eftir nokkrar rangar sjúkdómsgreiningar var hún loks árið 1992 greind með krabbamein í vélinda. Í þessum endurminningum leiðir hún lesendur í gegnum skelfilega reynslu sína af geisla— og lyfjameðferð og dáinu sem fylgdi í kjölfarið. Enginn bjóst við að hún kæmi aftur til meðvitundar og þvi síður að hún næði bata. Þrátt fyrir alvarleg veikindi sem hrjáðu hana lengi á eftir tókst henni að lifa af og þótti það ganga kraftaverki næst. Með sömu skarpskyggni, greind og tilfinningalegri einlægni og Marilyn French hefur beitt til að grannskoða líf svo margra annarra kvenna í skáldskapnum sökkvir hún sér nú ofan í eigið líf þar sem hún heyr baráttu við lækna og heilbrigðiskerfið, býður greiningum og hrakspám birginn og stígur upp úr áföllunum heilli og opnari en nokkru sinni fyrr. Þótt bókin sé hugvekja um líðan dauðvona manneskju þá er viðfangsefni hennar ekki síður lífið sjálft. Dauðinn setur mark sitt á lífið og opnar okkur nýja sýn á merkingu þess og tilgang. Dauðinn er «móðir fegurðarinnar» eins og Wallace Stevens ritaði eitt sinn en dauðinn er líka móðir tilgangsins. Þegar Marilyn French skoðar hlutverk dauðans í lífi sínu þá veitir hún lesendum hlutdeild í þýðingu sársauka og þjáninga fyrir manneskju sem hafnar yfirskilvitlegri hugsun og því hvaða áhrif nálægð dauðans hefur á tilveru okkar.

Marilyn French lauk doktorsprófi í bókmenntum frá Harvard háskóla. Hún hefur skrifað fimm skáldsögur: My Summer with George, Her Mother's Daughter, The Women's Room (Kvennaklósettið), The Bleeding Heart og Our Father og auk þess fjögur fræðirit, þ.á.m. The War Against Women og Beyond Power: On Woman, Men and Morals. Hún býr í Massachusetts og Flórída.
269 printed pages
Original publication
2021
Publication year
2021
Publisher
Saga Egmont
Have you already read it? How did you like it?
👍👎
fb2epub
Drag & drop your files (not more than 5 at once)