is
Audio
Michael White

Tolkien - ævisaga

Listen in app
Rithöfundarins, ljóðskáldsins, textafræðingsins og fræðimannsins J. R. R. Tolkien (1892-1973), sem þekktastur er fyrir tímamótaverk sitt, Hringadróttinssögu, sem hvert mannsbarn ætti að þekkja. En hún gekk í endurnýjun lífdaga er Peter Jackson kvikmyndaði hinn magnaða heim Tolkiens um aldamótin síðustu.

Farið er yfir ótrúlegt ævihlaup Tolkiens, allt frá uppvaxtarárum hans í Englandi og S-Afríku. Tilhugalíf skáldsins og hinn ógnvænlega tíma í skotgröfum heimsstyrjaldarinnar fyrri. White greinir einnig frá þeirri yfirburðarþekkingu sem Tolkien bjó yfir og fjallað er um hvernig Íslendingasögurnar og norræn goðafræði hafði áhrif á sköpun hans. Einstök saga um einstakan mann sem oft er nefndur faðir fantasíunnar.

Efnafræðikennarinn Michael White var afkastamikill höfundur. En gaf hann út 35 verk áður en hann lést árið 2018. Skrifaði hann bæði skáldsögur og fræðirit, meðal annars ævisögur og má þá helst nefna; Isaac Newton, Leonardo, Tolkien og C. S. Lewis. En ásamt fræðmanninum John Gribbin skrifaði hann einnig um Darwin, Einstein og Stephen Hawking. Fyrsta skáldsaga White, Equinox, kom út árið 2006 og hefur síðan þá verið þýdd yfir á 35 tungumál.
7:38:08
Publisher
Saga Egmont
Publication year
2019
Have you already read it? How did you like it?
👍👎
fb2epub
Drag & drop your files (not more than 5 at once)